ÞINGEYSKUR SAGNAGARÐUR

Þingeyskur sagnagarður á lénið www.sagnagardur.is.
Verið er að vinna vefsíðu fyrir félagið.

Félagið er félag áhugamanna og annarra aðila.

Þingeyskur sagnagarður afmarkast af Þorgeirskirkju, Goðafossi og Þingey, Þingeyjarsveit. Í framtíðinni má þó gera ráð fyrir að útvíkka megi starfsemina og þá staði sem sagnagarðurinn nær til eftir því sem tilefni gefast.

mynd
Þorgeirskirkja. Ljósm.: Símon Sverrisson.

 

 

 

 

 

 

 

 

  • Félagið er öllum opið og eru félagar nú um 30 talsins.
  • Þingeyskur sagnagarður hefur nú fengið styrki frá eftirtöldum aðilum:
  •  Kísilgúrsjóði: 150 þ.kr. (2005)
  • Pokasjóði: 750 þ.kr. (2005)
  • Ráðstöfunarfé samgönguráðherra: 400 þ.kr. (2005)
  • Kísilgúrsjóði: 200 þ.kr. (2006)
  • Menntamálaráðuneytið: 100.000 (2006)
  • Pokasjóður: 500.000 (2007)
  • KEA v/flygils: 500.000 (2008)
  • Þingeyjarsveit v/flygils: 300.000 (2008)
  • Avant: 100.000 (2008)
  • Þjóðhátíðarsjóður: 900.000 (2008)

 

Þá stendur Þjóðkirkjan straum af kostnaði vegna starfsmanns í Þorgeirskirkju yfir sumarið sem tekur á móti ferðamönnum, leiðbeinir og liðsinnir og stendur fyrir kyrrðarstund í lok hvers dags.

Stjórn Þingeysks sagnagarðs skipa:

Jóhann Guðni Reynisson, formaður, Hellu

Sr. Jón Aðalsteinn Baldvinsson, varaformaður, Hólum

Margrét Sólveig Snorradóttir, gjaldkeri, Hriflu

Stjórnin er sú fyrsta, kjörin á stofnfundinum í Þorgeirskirkju 23.2.2005 og endurkjörin á aðalfundum 2005 og 2006.

mynd
Goðafoss. Ljósm.: Símon Sverrisson.

 

 

 

 

 

 

 

 

 Tilgangur félagsins er að afla nýrrar þekkingar og safna saman og miðla fyrirliggjandi söguþekkingu til þeirra sem leið eiga um svæðið.

 Meginmarkmið félagsins eru:

 -         Að stuðla að varðveislu sagnfræðilegra fornminja, þjóðsagna og annarra menningarminja á svæðinu.

-         Að efla rannsóknir á íslenskri miðaldamenningu og kristnisögu með samvinnu fræðimanna, fyrirtækja, stofnana og einstaklinga með áherslu á hagnýta notkun og framsetningu sögulegrar þekkingar.

-         Að undirbúa og framkvæma deiliskipulagsgerð fyrir svæðið.

-         Að skapa styrkari forsendur fyrir menningartengda ferðamennsku með:

o       Gerð merkinga og upplýsingaskilta

o       Gerð gönguleiða og bættu aðgengi að helstu sagnastöðum í sagnagarðinum

o       Útgáfu fræðsluefnis um sögu svæðisins

o       Nýtingu upplýsingatækni við miðlun sögu svæðisins og einstakra menningarminja

o       Hefðbundnum og nýstárlegum viðburðum og dagskrá fyrir heimamenn og gesti.

 

mynd
Frá Ljósavatnsskarði. Ljósm.: Trausti Dagsson.

 

 

 

 

 

 

 

  

Hér að neðan á finna ýmsan fróðleik og fleira bætist við í fyllingu tímans:

 Kynningarbæklingur 2005 (pdf)

Samþykktir

Skýrsla stjórnar 2005

Skýrsla stjórnar 2006

Starfsáætlun 2006-2007

Áskorun til biskups um embætti sóknarprests 2006

Tillaga um vinnuhópa 2006

Þingey - verkefni Daggar Matthíasdóttur (stórt skjal, 11,8 MB)

Þjóðsögur - samantekt Guðmundar Arnar Jónssonar

 Tenglar:

Fornleifastofnun Íslands ses.

Þjóðkirkjan